Pólitík, peningar og prinsippmál
HHS – Heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði býr metnaðarfulla nemendur undir störf og nám á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Reynslan sýnir að grunnnám í þessum þremur greinum er dýrmætur undirbúningur fyrir stjórnmálaþátttöku, á sviði fjölmiðla, í opinberri stjórnsýslu og við hvers kyns almannatengsl.
Framvinda náms
Námið hefst með námskeiði í siðfræði sem kennt er samhliða rekstrarhagfræði, inngangi að stjórnmálafræði og aðferðarfræði. Stjórnmálagreining og stjórnmálaheimspeki eru í brennidepli á annarri önn, þar sem lagður er grunnur að skilningi á margbreytilegum stjórnmálahræringum og stjórnmálakenningum samtímans. Á sumarönn er boðið upp á námskeið í alþjóðamálum og viðfangsefnum öryggis- og kynjafræða, um leið og skilningur á hagfræðilegum þáttum alþjóðamála er dýpkaður. Þá fá nemendur innsýn í menningarsögulega og heimspekilega þætti sem móta hugsunarhátt vestræns samfélags.
„Fullkomið fyrir þá sem vilja skilja þjóðfélagsumræðuna. Ég get ekki hugsað mér betri samsetningu einnar námslínu.“
- Gústaf Gústafsson, nemandi í HHS
Kennsluaðferðir í samræmi við samtímann
Nám í HHS byggir á mikilli verkefnavinnu, rétt eins og nám í viðskiptafræði og viðskiptalögfræði. Nemendur eru hvattir til að takast á við raunhæf verkefni sem tengjast stjórnmálum, alþjóðamálum og þeim viðfangsefnum sem eru efst á baugi í þjóðfélagsumræðunni hverju sinni. Markmið skólans er að veita nemendum þjálfun sem gerir þeim kleift að skilja aðstæður út frá margbrotnum bakgrunni.
Enska á öðru ári
Öll námskeið í HHS eftir fyrsta árið eru kennd á ensku með þátttöku erlendra skiptinema sem stunda nám við skólann eina önn í senn. Nemendur fá því einstakt tækifæri til að auka enskukunnáttu sína og vinna með erlendum samnemendum.
Staðnám og fjarnám
HHS námsleiðin er kennd í bæði staðnámi og fjarnámi. Í staðnámi eru sumarannir, auk hefðbundinna haust- og voranna, sem þýðir að hægt er að ljúka BA námi á tveimur og hálfu ári.
HHS í fjarnámi er skipulagt sem þriggja ára nám. Nemendum í fjarnámi býðst þó einnig að taka sumarnámskeið í staðnámi, vilji þeir flýta fyrir sér.
,,Aðalástæðurnar fyrir því að ég valdi nám á Bifröst voru að mér líkaði kennsluaðferðir og staðsetning. Síðar áttaði ég mig á tengslanetinu sem ég byggði upp og vegur það þungt í dag.“
- Hlédís Sveinsdóttir, BA í HHS.
Skiptinám
Nemendum býðst að stunda nám í samstarfsskólum Bifrastar erlendis. Skiptinám er góður undirbúningur fyrir nám og störf í framtíðinni og dýrmæt reynsla. Nemendur fá ómetanlegt tækifæri til að kynnast annarri menningu, öðlast mikilvæga reynslu og víkka sjóndeildarhringinn.
Bifröst -lítil borg í borgarfirði
Í háskólaþorpinu á Bifröst er mikið lagt upp úr því að allt sé til staðar fyrir einstaklinga og fjölskyldur og að okkar fólk fái notið sín. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og mikið er lagt upp úr því að hver nemandi fái sitt rými hvort sem það er í vinnuherbergjum eða í fullbúinni líkamsræktarstöð okkar. Í þorpinu miðju er leikvöllur fyrir yngri börnin, örstutt út á fótboltavöll og fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.